Tilkynningar
Tilkynningar láta þig vita af viðburðum, t.d. nýjum skilaboðum og dagbókartilkynningum,
og aðgerðum sem eru í gangi, t.d. niðurhali skráa. Tilkynningar birtast á eftirfarandi
stöðum:
•
Stöðustikunni
•
Tilkynningaskjánum
•
Lásskjánum
25
Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.
Að opna og loka tilkynningaskjá
1
Til að opna tilkynningaspjaldið dregur þú stöðustikuna niður.
2
Til að loka tilkynningaspjaldinu dregur þú spjaldið upp.
Brugðist við tilkynningu á tilkynningaskjá
•
Pikkaðu á tilkynninguna.
Til að hafna tilkynningu af Tilkynningaskjánum
•
Styddu fingri á tilkynningu og ýttu henni til vinstri eða hægri.
Tilkynning víkkuð á tilkynningaskjá
•
Dragðu tilkynninguna niður.
Ekki er hægt að víkka allar tilkynningar.
Allar tilkynningar hreinsaðar af tilkynningaskjánum
•
Pikkaðu á
.
Brugðist við tilkynningu á lásskjá
•
Tvípikkaðu á tilkynninguna.
Tilkynningu hafnað á lásskjánum
•
Styddu fingri á tilkynninguna og ýttu henni til vinstri eða hægri.
Tilkynning víkkuð á lásskjá
•
Dragðu tilkynninguna niður.
Ekki er hægt að víkka allar tilkynningar.
Umsjón með tilkynningum á lásskjá
Þú getur stillt tækið þannig að aðeins valdar tilkynningar birtist á lásskjánum. Þú getur
gert allar tilkynningar, og efni þeirra, aðgengilegar, falið viðkvæmt efni fyrir allar
tilkynningar eða tiltekin forrit eða valið að sýnar engar tilkynningar.
Val á tilkynningum til að birta á lásskjá
1
Á Heimaskjár pikkarðu á .
2
Finndu og pikkaðu á
Stillingar > Hljóð og tilkynning > Þegar tækið er læst.
3
Veldu valkost.
Valkostir tilkynninga á lásskjá
Sýna allt innihald
tilkynninga
Fáðu allar tilkynningar á lásskjáinn. Þegar kveikt er á þessari stillingu skaltu hafa í huga
að allt efni (þ. á m. móttekinn tölvupóstur og spjall) er sýnilegt á lásskjánum nema þú
merkir viðkomandi forrit sem
Viðkvæmt í Forritatilkynningar stillingavalmyndinni.
26
Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.
Fela innihald
viðkvæmra
tilkynninga
Þú verður að hafa stillt PIN-númer, lykilorð eða munstur til að læsa skjánum svo þessi
stilling sé tiltæk.
Innihald falið birtist á lásskjánum þegar viðkvæmar tilkynningar
berast. Þú færð t.d. tilkynningu um móttekinn tölvupóst eða spjall, en innihaldið er
ekki sýnilegt á lásskjánum.
Sýna engar
tilkynningar
Þú færð engar tilkynningar á lásskjáinn.
Tilkynningatíðni forrits stillt
Hægt er að stilla tilkynningar fyrir hvert forrit. Til dæmis er hægt að hindra allar
tölvupóststilkynningar, setja Facebook™ tilkynningar í forgang og sjá
skilaboðatilkynningar á lásskjánum.
Tilkynningatíðni forrits stillt
1
Á Heimaskjár pikkarðu á .
2
Finndu og pikkaðu á
Stillingar > Hljóð og tilkynning > Forritatilkynningar.
3
Veldu forritið þar sem þú vilt breyta tilkynningastillingum.
4
Dragðu viðkomandi sleða til hægri.
Tilkynningastig og valkostir fyrir tiltekin forrit
Setja á bannlista Sýna aldrei tilkynningar fyrir valið forrit.
Forgangur
Forgangstilkynningar birtast á lásskjánum fyrir ofan allar aðrar tilkynningar.
Viðkvæmt
Þessi valkostur er einungis tiltækur ef þú hefur stillt PIN-númer, lykilorð eða munstur sem
skjálás og valið
Sýna allt innihald tilkynninga í Þegar tækið er læst stillingunni.
Tilkynningar fyrir forritið birtast á lásskjánum, en efni þeirra er ekki sýnilegt.
Tilkynningaljós
Tilkynningaljósið lætur vita um stöðu rafhlöðu og fleira. Til dæmis þýðir blikkandi hvítt ljós
nýtt skeyti eða ósvarað símtal. Tilkynningaljósið er sjálfvirkt en hægt er að slökkva á því
handvirkt.
Þegar slökkt er á tilkynningaljósinu kviknar bara á því þegar varað er við lítilli hleðslu rafhlöðu,
t.d. þegar hún fer undir 15 prósent.
Kveikt á tilkynningaljósi
1
Á heimaskjánum pikkarðu á .
2
Finndu og pikkaðu á
Stillingar > Hljóð og tilkynning.
3
Dragðu sleðann við hliðina á
Tilkynningarljós til hægri.