Texti sleginn inn með raddinnslætti
Þegar þú slærð inn texta geturðu notað raddinnsláttareiginleikann í stað þess að skrifa
orðin inn. Segðu einfaldlega þau orð upphátt sem þú vilt slá inn. Raddinnsláttur er
tilraunaverkefni frá Google™ sem er í boði fyrir fjölda tungumála og svæða.
Kveikt á raddinnslætti
1
Þegar þú slærð texta inn með skjályklaborðinu, dregurðu stöðustikuna niður á við
til að opna tilkynningaskjárinn, pikkar síðan á
.
2
Pikkaðu á
Setja upp innsláttaraðferðir og merktu svo við gátreitinn Google™
raddinnsláttur.
3
Á skjályklaborðinu pikkaðu á > og síðan á
Stillingar lyklaborðs.
4
Merktu við gátreitinn við hliðina á
Google™ raddinntakstakki.
5
Stillingar eru vistaðar með því að pikka á . Hljóðnematákn birtist núna á
skjályklaborðinu.
Texti sleginn inn með raddinnslætti
1
Opnaðu skjályklaborðið.
2
Pikkaðu á . Þegar birtist skaltu segja textann upphátt.
3
Þegar því er lokið pikkarðu aftur á . Textatillaga birtist.
4
Breyttu textanum handvirkt ef þörf krefur.
Til þess að láta lyklaborðið birtast og slá inn texta handvirkt pikkarðu á
.